
Flugdrekahlauparinn er falleg saga sem gerist í hörmulegu umhverfi. Þetta er þroskasaga Amirs, sem vex upp í Afganistan á 7 og 8 áratug síðustu aldar. Amir býr með Baba föður sínum, sem er virtur viðskiptamaður í Kabúl. Næstu nágrannar og í raun nánasta fjölskylda eru þjónninn Ali, sem er uppeldisbróðir Baba og sonur hans Hassan, jafnaldri Amirs.
Amir og Hassan eru óaðskiljanlegir, líkari bræðrum en vinum, en vegna þjóðfélagsstöðu Hassans viðurkennir Amir hann ekki að fullu sem vin. Árið sem drengirnir eru 12 ára verður röð skelfilegra atburða til þess að umturna lífi þeirra og slíta á vináttu þeirra til frambúðar. Þetta sama ár 1978, tóku kommúnistar völdin í Afganistan. Baba sá fram á að honum yrði ekki vært í stjórnartíð þeirra og tók þá ákvörðun að flýja land ásamt syni sínum, þeir héldu til Pakistan og þaðan til Bandaríkjanna.
Atburðir fortíðarinnar sitja bæði í Amir og Baba, Baba er áfram virtur í hinu Afganska samfélagi en að öðru leyti ,,bara“ fátækur bensínafgreiðslumaður og innflytjandi. Stolt hans er sært og hann vonast til þess að sonurinn fái bæði betra líf og geti endurreist heiður hans. Amir heldur fast í gamlan draum um að leggja fyrir sig ritstörf og báðir leiða þeir hugan að Hassan. Amir hefur samviskubit vegna hræðilegra atburða sem hann telur sig ábyrgan fyrir en hefur stimplað sjálfan sig heigul og ,,sætt“ sig við heigulshátt sem persónueinkenni.
Lífið heldur sinn vanagang, Amir verður ástfanginn giftist og skapar sér ágætis líf með eiginkonu sinni. Æskudraumurinn um að lifa af ritstörfum rætist en það setur strik í reikninginn að hann og eiginkonan geta ekki eignast barn. Samviskubitið vegna vinarins gamla ágerist, hann lítur á heigulsháttinn sem bæði sinn bjargvætt og ástæðu alls þess sem aflaga fer í lífi hans. Gamla lífið bankar svo upp á þegar hann fær bréf frá gömlum vini Baba, sem biður hann að koma til Pakistan.
Ferðin átti að vera stutt en endaði með hættulegum björgunarleiðangri til Afganistan. Hassan er látinn, var myrtur af Talibönunum og Amir ætlar að bjarga syni hans. Í stuttu máli þá verður ferðin erfiðari en Amir hafði gert ráð fyrir, hann þarf að horfast í augu við að gamla Afganistan er í rústum, hann þarf að takast á við eigið samviskubit og endurmeta heigulsstimpilinn. Barátta við yfirvöld bæði í Afganistan og Bandaríkjunum endar á þann veg að Amir kemst heim með drenginn. Hann og kona hans ættleiða hann og Amir fær þannig tækifæri til að bæta fyrir brot sitt gegn Hassan. Sagan endar á raunsæjan hátt, þetta er ekki hinn fullkomni endir, en eflaust eins góður og aðstæður mögulega leyfðu.
Flugdrekahlauparinn er vel skrifuð saga sem veitir lesendanum innsýn inn í veröld Afgana heima og að heiman. Sagan er eins Isabelle Allende orðaði það ,,ein af þessum ógleymanlegu og einstöku bókum sem lætur mann ekki í friði".
No comments:
Post a Comment