
Karlar sem hata konur er hörkuspennandi og vel skrifuð glæpasaga. Aðalpersónurnar eru blaðamaðurinn Mikael Blomkvist og Lisbeth Salander. Mikael Blomkvist er gagnrýninn viðskiptablaðamaður og eigandi hins róttæka dagblaðs Millenium. Hann er þessi yndislega týpa, sem vil öllum vel, er góðhjartaður og vel gefinn. Hlutverk hans sem gagnrýnins viðskiptablaðamanns gerir hann spennandi, hann er maður með hugsjón og tilbúinn að ganga langt til að lifa og starfa í samræmi við sína hugsjón.
Lisbeth Salander er að mörgu leyti andstaða Blomkvist, hún er reið kona á þrítugsaldri. Lífið hefur farið illa með hana og frá barnæsku hefur hún hvergi passað inn. Lisbeth er hörkutól, sem hleypir fáum að sér og er iðulega vanmetinn af samferðafólki sínu. Lisbeth er afburðargreind, er góður tölvuhakkar og starfar við persónunjósnir, fyrir sænskt öryggisfyrirtæki.
Karlar sem hata konur er í raun fjórar sögur, vafðar saman í eina og lesandinn fylgist spenntur með framvindu þeirra allra. Aðalsagan er rannsóknin á hvarfi hinnar 16 ára gömlu Harriet, hinar eru sagan um undarlegt ástarsamband aðalpersónanna, sagan um uppljóstrun á starfsemi fjárglæframannsins Wennerström og sagan um lífróður Millenium blaðaútgáfunnar.
Í upphafi sögunnar er Mikael Blomkvist dæmdur fyrir rógburð gegn viðskiptajöfrinum Wennerström. Í kjölfarið yfirgefur hann Millenium tímabundið og fer upp í sveit þar sem hann hafði verið beðinn að taka að sér að rannsaka hvað hafði orðið um Harriet Wanger fyrir 30 árum síðan.
Henrik Vanger gamall iðnjöfur og frændi Harriet, réð Blomkvist til verksins. Vanger hafði aldrei náð að sætta sig við að rannsóknin á hvarfi frænku hans hafði verið lokað. Hann var viss um að hún hafði verið myrt og það sem meira er, hann var viss um að einhver í fjölskyldunni hefði myrt hana. Eftir margra ára sjálfstæða rannsókn á málinu, ákveður hann að fá inn Mikael Blomkvist og tekst að sannfæra hann, með því að lofa því að veita honum upplýsingar um Wennerström.
Lisbeth Salander gengur fljótlega til liðs við hann og saman uppgötva þau óhugnanleg leyndarmál Wanger fjölskyldunnar og tekst að leysa málið. Á meðan á rannsókninni stendur myndast sterk tilfinningatengsl á milli Lisbeth og Mikael og lesandinn fær það á tilfinninguna að hin unga Lisbeth sé þarna ástfanginn í fyrsta sinn. Þau eru skemmtilegt skáldsögupar, gjörólík að öllu leyti en bæta hvort annað snilldarlega vel upp. Lausn morðgátunnar, fléttast síðan á skemmtilegan hátt saman við afdrif Millenium og viðskiptajöfursins Wenneström.
Sagan er eins og áður sagði hörkuspennandi, svolítið lengi að fara af stað en undirrituð ber þess vitni að þessa bók er ekki hægt að leggja frá sér fyrr en eftir síðasta punktinn.
glæsilegt hjá þér systir kær, ég verð að fara að lesa þessa bók
ReplyDeleteÞetta er enn þá ein besta bók sem ég hef lesið.
ReplyDelete