
How to be good er skemmtileg saga, uppfull af kaldhæðnum húmor og óspart gert grín að tvískinningnum í daglegu lífi fólks.
Sagan fjallar um Katie Carr, tæplega fertuga konu, tveggja barna móður, eiginkonu, lækni og að eigin sögn góða manneskju. Í upphafi sögunnar tilkynnir Katie, David eiginmanni sínum að hún vilji skilnað. Nokkrum mínútum síðar finnur hún sér elskhuga og stingur af, af læknaráðstefnu til að eyða með honum nóttinni.
David, er kaldhæðinn og úrillur blaðamaður. Katie og hann hafa verið saman í 24 ár og hjónabandið er fyrir löngu orðið kalt, erfitt og leiðinlegt. Þau búa saman af gömlum vana og vegna barnanna. Það verður ekkert úr skilnaðnum, en Katie er í stöðugri endurskoðun á sjálfri sér og reynir að halda í skilgreininguna góð manneskja. Hennar heitasta ósk er að David, verði allt öðruvísi en hann er.
Ósk hennar rætist þegar David hittir lífsgúrúinn og andalækninn DJ GoodNews. Kynnin við DJ GoodNew umturna persónuleika hans og lífi allrar fjölskyldunnar. David týnir kaldhæðninni og verður ,,góð“ manneskja. Hann byrjar á því að gefa leikföng barnanna til fátækra, býður heimilislausum unglingi að flytja til þeirra, skipar börnunum að leika við krakka sem þau þola ekki og fer með fjölskyldu-máltíðirnar út og deilir honum með þeim sem búa á götunni. David hættir líka að vinna, til að geta einbeitt sér að því umfangsmikla verkefni að bjarga heiminum.
Góðmennska Davids felst ekki í pólitískri rétthugsun, eða styrkjum til mikilvægra málefna. Hans góðmennska felst í aðgerðum sem hefur bein áhrif á daglegt líf allra í kringum hann og honum tekst á óþolandi hátt að koma inn samviskubiti hjá Katie, dóttur þeirra og nágrönnunum, vegna alls þess sem þau eiga umfram þá ,,lánlausustu“ í veröldinni.
Katie reynir að taka þátt í starfi Davids, því hún er góð manneskja. Hún hefur stöðugt samviskubit yfir minnstu ,,göllum“ í eigin persónuleika, henni líkar misvel við sjúklingana, vil ekki gefa fátækum matinn sinn og hefur engan áhuga á því að hýsa heimilislausan ungling, sem stelur frá þeim. Að lokum gefst hún upp og hættir að reyna að vera ,,góð“.
Hún útskýrir fyrir David að hún hafi ekki bolmagn til að bjarga heiminum og sé ekki tilbúinn til að fórna meiru en smápeningum til þess verkefnis. Hún bendir honum á að vegna björgunarleiðangursins, sé fjölskyldan orðin blönk og börnin óhamingjusöm. David finnst hún sjálfselsk, eins og næstum allir aðrir en gefst að endingu sjálfur upp á risavöxnu verkefni sínu.
Þau enda sem hefðbundinn fjölskylda, vel stæð, pólitískt rétthugsandi og styrkja með peningum mikilvæg málefni. Hjónabandið er hvorki gott né slæmt, börnin hvorki ánægð né óánægð og fjölskyldan kannski aðeins meira hamingjusöm en óhamingjusöm. OG Katie Carr er GÓÐ MANNESKJA.
How to be good er skemmtileg og fljótleg lesning og húmorinn í henni nær því að vera kaldhæðinn, án þess að hafa fyrirlitningartón, sem er bæði sjaldgæft og gott. Góð bók til að lesa í jólafríinu.
No comments:
Post a Comment